LazyTown

Goggi mega er einlægur aðdáandi tölvuleikja og alhliða snillingur með tæki og tól. Hann spilar tölvuleiki af mikilli einbeitni og eyðir ómældum tíma fyrir framan skjáinn, sem gerir það að verkum að hann á oft auðveldara með að vera fyrir framan tölvuna en að eiga í samskiptum við raunverulegt fólk. 

Fjarstýringin sem Goggi mega ber á erminni getur ekki slökkt á ágreiningi eða endurforritað vini hans og þegar einhver hversdagsleg vandamál koma upp á meðal vina hans, verður hann annað hvort að rembast við að útkljá þau með vinum sínum eða láta sig hverfa aftur inn í tölvuheima.

Stundum virðist sem Goggi mega geti einungis átt samskipti við krakkana með því að tala um nýjustu tækni og vísindi. Hæfni hans og eðlishvöt til þess að leysa úr vandamálum sem stafa af tæknilegum örðugleikum er mjög dýrmæt fyrir Íþróttaálfinn og krakkana í Latabæ. Hins vegar getur Goggi átt það til að fara alveg úr jafnvægi við það eitt að svara einfaldri spurningu, eins og: „Hver er uppáhaldsliturinn þinn?“

Goggi mega álítur sig mjög góðan í íþróttum og getur stoltur sagt að hann hafi unnið hvert einasta fótboltamót, það er að segja í tölvunni.