

Nenni níski er ráðríkur dótasafnari sem dreymir um að verða kóngur í ríki sínu.
Nenna níska finnst gaman að leika sér við krakkana í Latabæ en á það stundum til að vera eigingjarn. Hann vill helst ekki deila með öðrum og stundum verður hann öfundsjúkur þegar einhver krakkanna birtist með nýtt dót sem hann á ekki til í safni sínu.
Nenni níski er sannfærður um að eignir „skapi manninn“ og að í dótasafni hans leynist einmitt sá hlutur sem Íþróttaálfurinn og krakkarnir gætu þurft á að halda til þess að geta bjargað deginum. Það er bara alls ekki öruggt hvort hann gæti deilt þeim hlut með þeim. Líklega myndi hann syngja sitt uppáhalds lag: Þetta er mitt, mitt, mitt, mitt, mitt!
Nenni níski dáist að áhyggjulausu viðmóti Höllu hrekkjusvíns en er afbrýðisamur út í hana vegna stjórnunarhæfileika hennar. Hann er einnig afbrýðisamur út í Gogga mega og hans tölvur og tæki. Nenni skilur ekki gjafmildi Sigga sæta og þó svo að hann líki mjög vel við Sollu stirðu þá á hann mjög erfitt með að átta sig á því af hverju hún sé ekki fyrir efnisleg gæði eins og hann.




