

Siggi sæti er mjög sætur og góður. Hann er mikill gleðigjafi og finnst óendanlega gaman að leika sér með krökkunum. Siggi er oftast fyrstur til þess að samþykkja nýja hugmynd eða nýtt ævintýri sem krakkarnir stinga upp á. Hann getur stundum verið svolítið utan við sig, sérstaklega ef sælgæti er annars vegar en Siggi sæti borðar alltof mikið af sælgæti.
Hann er yngstur af krökkunum en hann hefur þegar ákveðið hvað hann ætlar að verða þegar hann er orðinn stór, hann ætlar að verða ofurhetja alveg eins og Íþróttaálfurinn. Siggi ætlar að vera duglegur að æfa sig í að hlaupa og hoppa svo að hann geti orðið jafn fimur og Íþróttaálfurinn, en fyrst ætlar hann að fá sér smá bita af sleikjónum.




