LazyTown

Uppskrift að fjöri!

Ný og skemmtileg uppskriftabók fyrir fjöruga krakka er komin út.

Í bókinni er 100% af ráðlögðum dagsskammti af:

  • Íþróttanammi
  • Skemmtun
  • Spennu
  • Orku
  • Fjöri

Bókin er í skemmtilegu broti og tilvalin fyrir krakka á öllum aldri til að nota í eldhúsinu. Bókinni fylgir afþurrkanlegur penni sem má nota til að merkja við þá hluti sem búið er að nota í uppskriftina hverju sinni.

Uppskriftunum eru gefin Íþróttanammistig eftir því hve margir ávextir eða grænmeti eru í hverri uppskrift.

Nokkur dæmi um uppskriftir sem eru í bókinni:

  • Hjólabretti Íþróttaálfsins
  • Melónumunnur Bæjarstjórans
  • Ofurþeytingur Sollu stirðu
  • Sjóræningjaskip Glanna
  • Bragðmikið tómatsalat Höllu hrekkjusvín
  • Frábærir frostpinnar Sigga sæta
  • Regnbogi Nenna með Gullídýfu
  • Megapizza Gogga
  • Baunasalat Stínu símalínu

Bókin er komin í búðir Samkaupa og Nettó